Um mælaborðið

Mælaborðið sýnir lykilupplýsingar fyrir íslenska ferðaþjónustu ásamt spám næstu 24 mánuði. Verkefnið er unnið af Augur, sjálfstæðu íslensku greiningarfyrirtæki. Spár eru uppfærðar um leið og ný gögn berast.

Hvernig á að lesa línuritin

  • Heil lína sýnir mæld gögn — tölur sem þegar hafa verið birtar.
  • Brotalína sýnir spá líkansins fram í tímann.
  • Skyggða svæðið er óvissubil spárinnar. Því breiðara sem það er, því meiri er óvissan. Raunverulega talan lendir að jafnaði innan bilsins, en ekki alltaf.
  • Punktalínan lóðrétt markar skilin milli mældra gagna og spár.

Neðst á hverju línuriti er sleði sem stillir tímabilið. Sjálfgefið sýnir línuritið síðustu tvö árin ásamt spánni; dragðu sleðann til vinstri til að sjá lengri sögu aftur til ársins 2018.

Spáaðferð

Spárnar byggja á reiknilíkönum vélræns náms (e. machine learning) og er líkanið sérsniðið að hverri spá.

Afleiddar upplýsingar

Afleiddar upplýsingar líkt og meðal kortavelta og meðalfjöldi gistinátta eru reiknaðar út frá viðeigandi gögnum. Ekkert óvissubil fylgir þeim spám.

Sama á við um markaðshópa (t.d. Norðurlönd) og eigin lönd sem notandi velur saman: spár landanna eru lagðar saman, en óvissubil summunnar er ekki einfaldlega summa bilanna og því er ekkert bil sýnt.

Markaðshópar

Þegar hópur er valinn eru tölur landanna í honum lagðar saman. Löndin í hverjum hópi eru einnig talin upp undir fyrirsögn línuritsins hverju sinni.

Skiptingin eftir þjóðerni er ekki sú sama í komutölum og gistinóttum — talnaefni gistinátta er mun fínna — og því eru hóparnir ekki eins á milli síðnanna.

Komur ferðamanna (Markaðir):

HópurLönd
NorðurlöndDanmörk, Noregur, Svíþjóð, Finnland
BretlandseyjarBretland, Írland
Norður-AmeríkaBandaríkin, Kanada
Mið-EvrópaÞýskaland, Frakkland, Holland, Belgía, Sviss, Austurríki, Pólland
Suður-EvrópaSpánn, Ítalía
Austur-EvrópaEistland / Lettland / Litháen, Rússland
AsíaKína, Japan, Suður-Kórea, Indland, Hong Kong, Singapúr, Taívan, Ísrael

Í komutölum eru aðeins 30 lönd greind sérstaklega. Öll önnur lönd — þar á meðal Portúgal, Grikkland, Tékkland og Brasilía — eru talin með í Önnur þjóðerni, sem er um 10% allra erlendra ferðamanna. Þau er því ekki hægt að skoða stök hér. Ástralía og Nýja-Sjáland koma saman í einni röð og mynda því ekki sérstakan hóp.

Gistinætur (Landshlutar):

HópurLönd
NorðurlöndDanmörk, Noregur, Svíþjóð, Finnland, Færeyjar, Grænland
BretlandseyjarBretland, Írland
Norður-AmeríkaBandaríkin, Kanada
Mið-EvrópaÞýskaland, Frakkland, Holland, Belgía, Sviss (þ.m.t. Lichtenstein), Austurríki, Pólland, Tékkland, Ungverjaland, Slóvakía, Lúxemborg
Suður-EvrópaSpánn, Ítalía, Portúgal, Grikkland, Malta, Króatía, Slóvenía, Kýpur
Austur-EvrópaRússland, Úkraína, Rúmenía, Búlgaría, Eistland, Lettland, Litháen
AsíaKína, Japan, Suður-Kórea, Indland, Ísrael, Tyrkland, Önnur Asíulönd
EyjaálfaÁstralía, Nýja-Sjáland, Önnur lönd Eyjaálfu og önnur landsvæði
AfríkaSuður-Afríka, Önnur Afríkulönd
Mið- og Suður-AmeríkaBrasilía, Önnur lönd Mið- og Suður Ameríku

Þessir hópar ná til nær allra gistinátta erlendra gesta. Utan þeirra standa aðeins Önnur Evrópulönd (um 0,2%) og Ísland, enda eru Íslendingar ekki erlendur markaður — þeir eru inni í heildartölunni "Allir gestir".

Lönd sem falla ekki í neinn hóp er alltaf hægt að velja stök eða setja saman í eigin hóp.

Árstíðir

Árstíðayfirlitið skiptir mánuðunum í fjögur tímabil: vetur (des–feb), vor (mar–maí), sumar (jún–ágú) og haust (sep–nóv). Veturinn er kenndur við bæði árin, t.d. "Vetur 2025–26". Dekkri súlur sýna mæld tímabil og ljósari súlur tímabil sem eru að hluta eða öllu leyti spáð.

Gögn

EfniHeimild
Fjöldi ferðamanna, gistinætur, nýting herbergjaHagstofa Íslands
Erlend kortaveltaSeðlabanki Íslands
Bílaleigubílar í umferðSkráningartölur ökutækja

Gögn áranna 2020–2022 eru brengluð vegna heimsfaraldursins. Í spálíkönunum er notuð leiðrétting á því tímabili svo faraldurinn skekki ekki spár um framtíðina.

Uppfærslur

Ný gögn eru sótt og spár endurmetnar mánaðarlega. Dagsetningin efst til hægri ("Uppfært") sýnir hvenær núverandi spá var reiknuð.

Uppfært 2. september 2026 kl. 21:20. Mælaborðið er ókeypis á opnu prófunartímabili.